Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2026.
Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Samkvæmt ákvörðun atvinnuvegaráðherra mun sérstök áhersla verða lögð á öryggismál á ferðamannastöðum við úrvinnslu umsókna.
Gæðamat sjóðsins mun taka mið af þessari áherslu og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna.
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is.
Umsóknartímabil er frá 7. október til 4. nóvember kl 13.00.

Nánari upplýsingar má nálgast á síðu Ferðamálastofu.