- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra auglýsir niðurstöður sveitarstjórnar Rangárþings eystra með þeim aðalskipulagsbreytingum sem hafa verið samþykktar á árinu 2026. Jafnfram er bent á Skipulagsgáttina og yfirlitssíðu aðalskipulagsmála í sveitarfélaginu.
Stórólfsvöllur, atvinnu- og iðnaðarsvæði - óveruleg breyting á aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti óverulega breytingu á aðalskipulagi á fundi sínum þann 15. október 2026. Með breytingunni var afmörkun svæðisins breytt. Niðurstaða sveitarstjórnar tilkynnist hér með.
Móbakki úr landi Móeiðarhvols - breyting á aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti tillögu aðalskipulagsbreytingar þann 16. júlí 2026. Breytingin gerir ráð fyrir að heimila fasta búsetu innan svæðisins ásamt verslunar- og þjónustusvæði og að gera ráð fyrir dýraspítala. Niðurstaða sveitarstjórnar tilkynnist hér með.
Ytri-Skógar, ÍB23 - óveruleg breyting á aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti óverulega breytingu á aðalskipulagi á fundi sínum þann 20. ágúst 2026. Almennt er heimilað að hafa nýtingarhlutfall 0,2-0,5 en með breytingunni er verið að leiðrétta skilmála og heimila að nýtingarhlutfallið verði 0,8. Niðurstaða sveitarstjórnar tilkynnist hér með.
Ytri-Skógar, breyting á íbúðarfjölda á ÍB23 - breyting á aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti tillögu aðalskipulagsbreytingar þann 12. febrúar 2026. Breytingunni hækkar íbúðafjöldi úr 5 í 16 íbúðir. Niðurstaða sveitarstjórnar tilkynnist hér með.