Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi:

Efri-Úlfsstaðir í Landeyjum – Breyting á deiliskipulagi

Deiliskipulagstillagan að reisa fjögur 80 m² gestahús á byggingarreit B1, með 5 m mænishæð sem þegar hafa verið byggð. Á byggingarreit B2 og B4 verður heimilt að reisa þrjú samskonarhús. Á byggingarreit B3 verður heimilt að reisa 1.200 m² byggingu til landbúnaðar með allt að 6 m mænishæð. Einnig er verið er að leiðrétta upplýsingar frá upprunalegu skipulagi.

 

Samkvæmt 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi:

Steinar og Hvassafell undir Eyjafjöllum – breyting á aðalskipulagi

Með aðalskipulagsbreytingunni er verið að breyta 15 ha svæði úr landbúnaði í verslunarog þjónustusvæði ásamt 4 ha íbúðarsvæði.

 

Steinar og Hvassafell undir – Nýtt deiliskipulag

Deiliskipulagstillagan tekur til þriggja 5 ha verslunar- og þjónustusvæða og 4 ha íbúðabyggðar. Á lóð A1 verður heimilt að byggja 600 m² með 8 m hámarkshæð. Á Lóð A2 stendur til að endurbyggja íbúðarhús undir starfsmannaíbúðir og/eða gistirými fyrir ferðamenn. Heildarbyggingarmagn verður 800 m² og 8 m hámarkshæð. Tillagan heimilar að lóð A3 verði breytt í starfsmannaíbúðir sem áður voru landbúnaðarbyggingar. Heildarbyggingarmagn verður allt að 1.200 m² og hámarkshæð 8 m. Lóð A4 heimilar allt að 950 m² undir starfsmanna og/eða gistirými fyrir ferðamenn. Lóð C1 heimilar 1-2 hæð hús með risi, allt að 8 m hámarkshæð og heildar byggingarmagn 2.500 m². Á lóð C2 er gert ráð fyrir hóteli, 10.00 m² á 1-2 hæðum með kjallara og hámarkshæð veður 9 m. Lóð C3 er ætluð fyrir starfsfólk, um er að ræða 3-5 rað- eða parhús á einni hæð, 1.500 m² og 5 m hámarkshæð.

 

Ofangreindar tillögur er hægt að kynna sér á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt HMS og á viðtalstíma hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 4, Hvolsvelli. Umsagnar- og athugasemdarfrestur er frá 18. nóvember til og með 5. janúar 2027. Umsögnum og athugasemdum skal skila skriflega í gegnum Skipulagsgáttina eða til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

 

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra