Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi:

Fossengi úr landi Brúar við Auraveg – Nýtt deiliskipulag

Deiliskipulagið tekur til nýrrar lóðar sem er 30.150 m² og fær heitið Fossengi. Lóðin er úr jörðinni Brú, L163848. Gerðir eru tveir byggingareitir innan Fossengis: á B1 verður heimilt að byggja 300 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 60 m² bílskúr. Á B2 verður heimilt að byggja fjögur 30 m² frístundahús með möguleika á rekstri.

 

Ofangreindar tillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 12. Ágúst 2026. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar og er athugasemdarfrestur veittur til og með 24. september 2026. Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgáttina eða skriflega í Skipulagsgáttina eða til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra