- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að deiliskipulagi:
Réttarsandur – Nýtt deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan nær til 6,78 ha spildu úr landi Réttarsands, L233917. Tillagan gerir ráð fyrir þremur byggingarreitum, á B1 verður heimilt að byggja 350 m² íbúðarhús, 250 m² gripahús og 600 m² skemmu. Hámarkshæð húsa er 7,5 m frá botnplötu. Á byggingarreit B2 og B3 verður heimilt að reisa sex 50 m² gestahús, allt að 6 m. há frá plötu. Gestafjöldi er að hámarki 20 manns.
Samkvæmt 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst eftirfarandi tillaga að aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulagi:
Bolavellir úr Ytra-Seljalandi - nýtt deiliskipulag
Deiliskipulagstillagan nær til 5 ha svæðis úr landi Ytra-Seljalands. Gert er ráð fyrir 12 lóðum þar sem heimilt verður að byggja 50 m² gestahús. Hámarkshæð húsa er 6 m frá botnplötu og heimilt verður að vera með gistingu fyrir fjóra í hverju húsi.
Bolavellir úr Ytra-Seljalandi – aðalskipulagsbreyting
Breytingin tekur til 5 ha svæðis úr Ytra-Seljalandi sem verður breytt úr landbúnaðarlandi (L1) í verslunar- og þjónustusvæði (VÞ).
Ofangreindar tillögur er hægt að kynna sér á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á viðtalstíma hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 4, Hvolsvelli. Umsagnar- og athugasemdarfrestur lýsingarinnar er frá 13. febrúar til og með 27. mars 2026. Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgáttina eða til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra