- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst tillaga að deiliskipulagi:
Austurvegur 10 á Hvolsvelli – Deiliskipulagsbreyting
Deiliskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar og nýjum byggingarreit B2 undir bílaþvottastöð og 130 m² byggingu tengda starfseminni.
Ofangreinda tillögu er hægt að kynna sér á heimasíðu Rangárþings eystra, á Skipulagsgátt HMS og á viðtalstíma hjá skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 4, Hvolsvelli. Umsagnar- og athugasemdarfrestur tillögunnar er frá 17. júlí til og með 20. ágúst 2026. Athugasemdum skal skila skriflega í gegnum Skipulagsgáttina eða til skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra