- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða deildastjóra félagslegarar heimaþjónustu. Starfshlutafall er 80-100 %. Starfsfólk félags- og skólaþjónustu starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Íbúar eru rétt rúmlega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf deildarstjóra félagslegrar heimaþjónustu.
Um er að ræða 80–100% starf þar sem viðkomandi hefur yfirumsjón með skipulagningu og framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu og tilsjónar. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, góða þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og jákvæð samskipti.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Umsjón með skipulagningu og framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu.
· Mat á þjónustuþörf einstaklinga og eftirfylgd með þjónustu.
· Verkstjórn og dagleg stjórnun starfsfólks.
· Gerð vinnuáætlana, skipulagning afleysinga og sumarleyfa.
· Ráðningar, móttaka og fræðsla nýrra starfsmanna.
· Samskipti og samstarf við þjónustunotendur, aðstandendur og aðrar stofnanir.
· Samstarf við félagsráðgjafa og aðra starfsmenn félagsþjónustunnar.
· Þátttaka í þróun og stefnumótun þjónustunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Félagsráðgjöf og/eða önnur háskóla- eða fagmenntun sem nýtist í starfi.
· Reynsla af stjórnun og/eða skipulagningu þjónustu er kostur.
· Reynsla af starfi með öldruðum og/eða einstaklingum með stuðningsþarfir er kostur.
· Góð samskipta- og samstarfshæfni.
· Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
· Fagleg vinnubrögð, áreiðanleiki og sveigjanleiki.
· Góð almenn tölvukunnátta.
Við bjóðum
· Fjölbreytt og krefjandi starf.
· Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og uppbyggingu þjónustunnar.
· Samstarf við metnaðarfullan hóp starfsfólks.
· Góðan starfsanda og tækifæri til faglegs þroska.
Umsóknir
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2026.
Umsókn ásamt ferilskrá og upplýsingum um menntun og fyrri störf skal berast svava@felagsmal.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svava Davíðsdóttir framkvæmdarstjóri Félags- og skólaþjónustu með tölvupósti á svava@felagsmal.is.