- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararfleifð auglýsir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins.
Markmið styrkjanna er að stuðla að fjölbreyttu viðburðahaldi í sundlaugum um allt land. Viðburðunum er ætlað hvoru tveggja að vekja athygli á sundlaugamenningu og auðga menningarlíf í heimabyggð og nærumhverfi. Viðburðir skulu fara fram á árinu 2026.
Sveitarfélagið Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag og vill hvetja íbúa til að taka þátt í að skapa skemmtilegt og lifandi umhverfi í sundlauginni á Hvolsvelli.
Í gegnum tíðina höfum við verið ýmsa viðburði ss eins og bíó, tónlistaratriði, flot, gusur, spuringakeppni, diskósund ofl. Við leitum eftir hugmyndum frá íbúum um skemmtilega viðburði, afþreyingu eða annað sem gæti lífgað upp á sundlaugarstemninguna.
Sendu okkur þína hugmynd á heilsueflandi@hvolsvollur.is.
Allar hugmyndir eru vel þegnar – saman gerum við sundlaugina enn skemmtilegri!