- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra hvetur eigendur íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu til að tryggja að húsnúmer séu ávallt sýnileg, auðlesin og fest upp á varanlegan hátt. Skýr húsnúmer geta skipt sköpum þegar sjúkraflutningafólk, slökkvilið eða aðrir viðbragðsaðilar þurfa að finna rétt hús eða íbúðir í neyð.
Skipulags- og byggingarfulltrúi hvetur því íbúðarhúsaeigendur til að yfirfara númeramerkingar við sínar eignir. Gott er að hafa í huga eftirfarandi:
· húsnúmer sé vel sýnilegt frá aðkomuvegi.
· merkingin sé nægilega stór og læsileg.
· hún sker sig greinilega úr bakgrunni.
· hún sé fest á varanlegan hátt.
· gróður, snjór eða annað byrgi ekki sýn að merkingunni.
Samhliða þessari áskorun til íbúa mun sveitarfélagið yfirfara götuskilti á svæðinu.
