Á sveitarstjórnarfundi 15.maí var ársreikningur Rangárþings eystra fyrir árið 2024 staðfestur. Það er mér sönn ánægja að standa hér og segja frá því að sjaldan eða aldrei hefur rekstur sveitarfélagsins komið eins vel út.

Sveitarfélagið stendur gríðarlega sterkt og eru okkur allir vegir færir á næstu árum til frekari uppbyggingar og þjónustu við okkar íbúa. Að rekstur sveitarfélagsins skuli vera í eins góðum horfum og raun ber vitni er ekki sjálfgefið. Þar ber helst að þakka samheldinni sveitarstjórn í áætlanagerð og framfylgd áætlana og svo öllu því frábæra starfsfólki sem við búum yfir hér hjá Rangárþingi eystra, þessi fádæma árangur er ykkur að þakka.

Það er von mín að sveitarstjórn verði áfram einhuga í því við vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs að íbúar í Rangárþingi eystra fái að njóta sterkrar stöðu sveitarfélagsins með því móti að horft sé til lækkunnar á álögur á íbúa og haldið sé áfram öflugri uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu öllu. 

 
☑️Heildarvelta A og B- hluta 3.731 m.kr.
☑️Rekstrarniðurstaða jákæð um 520 m.kr.
☑️Fjárfest fyrir 394 m.kr.
☑️Engin ný lán tekin.
☑️Eigið fé í árslok 3.901 m.kr.
☑️Handbært fé frá rekstri 914 m.kr.
☑️Veltufjárhlutfall 1,7
☑️Skuldaviðmið 38,8% (Hámark skv. reglugerð 150%)
 
 

F.h. sveitarstjórnar Rangárþings eystra
Anton Kári Halldórsson
Sveitarstjóri