- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Á morgun, fimmtudag, munu nemendur á elsta stigi Hvolsskóla setja upp árshátíðarsýningu sína í Hvolnum. Að þessu sinni hafa nemendur valið að setja á svið sýninguna „Með allt á hreinu“ eftir samnefndri kvikmynd.
Nemendur og starfsfólk hafa verið dugleg við æfingar og mikill metnaður hefur verið lagður í sýninguna. Að sjálfsögðu verða klassísk atriði úr verkinu á sínum stað og mega áhorfendur eiga von á því að sjá bæði búktal og skyggnilýsingu. Lögin úr myndinni frá Suðmönnum og Grýlunum hljóma og mun húsvörðurinn frægi einnig stíga á svið, en við getum líklega öll verið sammála um að hann sé ekki alveg jafn almennilegur og hann Garðar okkar.
Sýningartímar:
Fyrri sýning: Klukkan 16:00
Seinni sýning: Klukkan 19:00
Allir eru velkomnir. Við hvetjum íbúa til að fjölmenna, styðja við bakið á okkar hæfileikaríku ungmennum og njóta sýningarinnar.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af general prufu.