- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Anna Kristín Guðjónsdóttir, íslensku- og kynjafræðikennari við Hvolsskóla, hlaut síðastliðinn föstudag verðlaun fyrir verkefni sitt: Fræðslutorg í Hvolsskóla – Kynjafræði, í samkeppni á vegum jafnréttisnefndar KÍ. Anna Kristín hefur átt hugmyndina að, stýrt og sett upp þriggja verkefna seríu fyrir nemendur á elsta stigi. Það eru verkefnin Harry Potter, Fræðslutorg og Nýsköpun. Eitt verkefni er tekið fyrir í þema ár hvert þannig að allir nemendur á stiginu fara einu sinni í gegnum hvert þeirra á sínum grunnskólaferli. Verkefnin eru ýmist einungis unnin í íslensku og kynjafræði eða samþætt milli fleiri námsgreina. Einnig er mismunandi eftir verkefnum og viðfangsefnum hvort verkefnin eru unnin í hverjum bekk fyrir sig eða þvert á bekki í blönduðum hópum.
Þessi verkefni hafa verið gríðarlega skemmtileg, bæði fyrir nemendur og starfsmenn og vakið verðskuldaða eftirtekt bæði í samfélaginu og utan þess.
Anna Kristín er vel að þessum verðlaunum komin og óskum við henni innilega til hamingju.
Fréttina á heimasíðu KI má nálgast hér: https://www.ki.is/um-ki/utgafa/frettir-og-pistlar/frettir/2026/verkefni-um-jafnretti-verdlaunud-a-thingi-ki/