Læsi á stöðu og baráttu kvenna er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi í tilefni af Kvennaári 2025, til að vekja athygli á þróun kvenréttinda.

Héraðsbókasafn Rangæinga er þátttakandi í þessu verkefni. Við minnum á samstarfsverkefni með Hvolsskóla og Héraðsskjalasafni Rangæinga og V-Skaftfellinga á síðasta ári.

Nú er boðað til bókmenntagöngu.

Mæting er við Stórólfshvolskirkju kl. 14:00 þann 8. mars.

Gengið verður um Hvolsvöll, stoppað á ákveðnum stöðum þar sem lesin verður valinn texti úr bókum eftir íslenskar konur. Lesarar eru meðlimir í Bókaklúbbnum Skruddur.

Gangan endar á bókasafninu þar sem boðið verður upp á kaffi, safa og köku

Einnig verður þar sýning á bókum eftr íslenskar konur.

Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.

 

Héraðsbókasafn Rangæinga