Rangárþing eystra vinnur að því að safna upplýsingum um gæði fjarskiptasambands innan sveitarfélagsins. Nýlega sendi byggðarráð erindi til Fjarskiptastofu þar sem áhersla var lögð á að fjarskiptasamband væri einn af mikilvægum grunninnviðum samfélagsins. Traust fjarskiptasamband hefur bein áhrif á öryggi íbúa, atvinnulíf og starfsemi viðbragðsaðila.

Í minnisblaði sveitarfélagsins kom fram að víða leynast svæði þar sem farsíma- og gagnasamband er ófullnægjandi eða óáreiðanlegt. Þetta á bæði við um afskekkt svæði og fjölfarnar ferðamannaleiðir. Einnig var bent á að gæði fjarskipta virðist víða hafa minnkað eftir að 2G- og 3G-kerfum var lokað, þar sem nýrri kerfi hafa ekki alltaf náð sömu útbreiðslu og þau eldri. Farsímar gegna í dag lykilhlutverki í upplýsingamiðlun til almennings við aðstæður þar sem mikilvægt er að bregðast hratt við náttúruvá, svo sem við eldgos og vatnavexti. Áreiðanlegt samband er sömuleiðis mikilvæg forsenda þess að íbúar geti nýtt sér rafræn skilríki til auðkenningar við daglega þjónustu.

Svar Fjarskiptastofu og komandi mælingar

Fjarskiptastofa hefur svarað erindinu og tekur undir mikilvægi þessara sjónarmiða um öryggi íbúa og gesta, almannavarnir og aðgang að stafrænni þjónustu. Stofnunin bendir á að fjarskiptafyrirtækin séu enn að vinna í því að skipta út farsímasendum og bæta við sendastöðum þar sem þörf er á. Endanleg mynd af þeirri vinnu mun ekki liggja fyrir fyrr en í sumarlok.

Til að meta raunverulega stöðu hefur Fjarskiptastofa gert samning við þýska sérfræðifyrirtækið Rohde & Schwarz um nýjar landsdekkandi mælingar sem áætlað er að hefjist í september 2026. Markmiðið með mælingunum er að meta með hlutlægum hætti hvort breytingar hafi orðið á útbreiðslu eða þjónustugæðum í kjölfar lokunar eldri kerfa og greina möguleg staðbundin frávik. Gert er ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir í nóvember á þessu ári.

Óskum eftir aðstoð íbúa

Fjarskiptastofa óskaði í svari sínu eftir því að sveitarfélagið miðlaði til þeirra nánari upplýsingum um svæði þar sem farsíma- og gagnasamband er talið ófullnægjandi eða þar sem þjónusta hefur versnað á undanförnum árum. Þessar ábendingar geta nýst stofnuninni vel við greiningu og undirbúning fyrir fyrirhugaðar mælingar.

Við biðjum því íbúa um að hjálpa okkur að kortleggja þessi svæði. Við höfum útbúið einfalt skráningarform þar sem hægt er að senda inn upplýsingar um staði þar sem fjarskiptasamband er lélegt.

Vinsamlegast smellið á hlekkinn hér að neðan til að skrá ábendingu:

https://www.hvolsvollur.is/is/moya/formbuilder/index/index/fjarkskiptasamband

Við þökkum kærlega fyrir samstarfið og aðstoðina við að koma þessum mikilvægu upplýsingum á framfæri.