- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
![]() |
17.júní hátíðarhöldin verða haldin hátíðleg í Fljótshlíð, undir Eyjafjöllum og í Landeyjum. Í Njálsbúð hefst fjörið kl.13.30 með skráningu í víðavangshlaupið fræga og öðru sprelli í framhaldinu. Hið rómaða kaffihlaðborð Bergþórukvenna verður á sínum stað að hlaupi og sprelli loknu. Kostar litlar 2000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. 6 - 14 ára, 1000 kr fyrir eldri borgara og frítt fyrir leikskólabörn. Enginn posi Í Goðalandi í Fljótshlíð stendur kvenfélagið Hallgerður fyrir hátíðardagskrá með hefðbundnu sniði. Hátíðarræða, fjallkona, afreksbikar Búnaðarfélagsins verður afhentur, tónlistaratriði og hið vinsæla og stórglæsilega kökuhlaðborð kvenfélagsins verður á sínum stað. Verð: Fullorðnir 2000kr, grunnskólabörn 500kr, frítt fyrir 6 ára og yngri og veittur verður fjölskylduafsláttur. Á Heimalandi undir Eyjafjöllum verða 17.júní hátíðarhöldin að venju haldin með dagskrá sem hefst kl. 14.00.Setning, ávarp fjallkonunnar, fjöldasöngur, útileikir, selt kaffi og kræsingar, verðlaunaaending. UMF Trausti og Kvenfélagið Eygló sjá um hátíðarhöldin. |