Við fögnum þjóðhátíðardeginum saman á Hvolsvelli miðvikudaginn 17. júní. Meistaraflokkur kvenna í KFR sér um og skipuleggur hátíðardagskrána í ár fyrir sveitarfélagið og er dagskráin hin glæsilegasta. Tilvonandi 10. bekkingar Hvolsskóla sjá um morgunmat í Hvolnum og eru allir velkomnir.
 
Dagskráin í stuttu máli:
kl. 9:00–11:00 — Morgunmatur í Hvolnum. Tilvonandi 10. bekkingar Hvolsskóla sjá um veitingar. Andlitsmálning og hátíðlegt hárskraut hjá leikmönnum meistaraflokks kvenna.
kl. 10:00–12:00 — Opið hús hjá Björgunarsveitinni Dagrenningu. Blöðrusala og hægt að klifra í klifurveggnum.
kl. 12:30 — Skrúðganga. Hefst við Kirkjuhvol og endar á miðbæjartúninu við Hvolinn.
kl. 13:00 — Hátíðardagskrá: Karíus & Baktus frá Þjóðleikhúsinu, Jón Jónsson tekur lagið, Fjallkonan fríð og hátíðarræða. Hátíðarkaffi í Hvolnum (2.000 kr. fyrir 12 ára og eldri, 500 kr. fyrir 6–12 ára, frítt fyrir 5 ára og yngri — fjölskyldutilboð 6.000 kr.), andlitsmálning og hárskraut, og sjoppa meistaraflokks kvenna KFR.
kl. 13:30–15:00 — Slökkviliðsbíll og brunaslanga á miðbæjartúninu, halda bolta á lofti, keppni, mini-fótboltamót og fleira.
kl. 17:00–20:00 — Bíósýningar í Hvolnum, frítt inn og sjoppa á staðnum. Kl. 17:00 fyrir 4–6 ára, kl. 18:00 fyrir 7–12 ára og kl. 20:00 fyrir 13 ára og eldri.
 
Sjáumst á Hvolsvelli!