Dagskrá
1.Aðgerðaráætlun; Heimsfaraldur inflúensu; COVID-19
2.Bréf vegna frestunar aðalfunds Lánasjóðs sveitarfélaga ofh.
3.Stjórnunar- og verndaráætlun Friðlands að Fjallabaki - kynning
4.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar Beiðni um styrk vegna uppgræðslu á Fljótshlíðarafrétt 2020.
5.556. fundur stjórnar SASS; 3.04.2020
6.76. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu; 16.4.2020
7.Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 65
2004006F
7.1
2004031
Rekstraryfirlit 2019-2020; Brunavarnir
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 65
Margrét Jóna Ísólfsdóttir fjármálastjóri Rangárþings eystra fer yfir rekstraryfirlit Brunavarna Rangárþings bs. Reksturinn er í góðu jafnvægi, þó hefur dregið verulega úr launakostnaði.
7.2
2002047
Slökkvistöð Hellu áfangi 2
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 65
Ólafur Rúnarsson fer yfir stöðu framkvæmdar við 2. áfanga slökkvistöðvar á Hellu. Framkvæmdir ganga vel og eru á áætlun.
7.3
2004032
Lántaka; 2. áfangi slökkvistöðvar á Hellu
Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 65
Stjórn óskar eftir því við aðildarsveitarfélög að þau ábyrgist lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð 25.000.000 kr. til byggingar slökkvistöðvar á Hellu. Um er að ræða fjármögnun 2. áfanga byggingarinnar sem jafnframt er lokaáfangi framkvæmdarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar
Tillaga liggur fyrir um að sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykki hér með á sveitarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Brunavarna Rangárvallasýslu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 25.000.000. Nær samþykki sveitarstjórnar Rangárþings eystra jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til að fjármagna 2. áfanga byggingar á slökkvistöð sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Antoni Kára Halldórssyni, kt. 030583-3539, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Rangárþings eystra að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
8.Styrktarsjóður EBÍ; óskað eftir umsóknum vegna úthlutunar 2020
9.Sunnlenskur samráðsfundur; Minnisblað
10.Plokk á Íslandi; stóri plokkdagurinn 25. apríl 2020
Fundi slitið - kl. 11:00.
Lilja Einarsdóttir fundarstjóri setur fund og leitar eftir athugasemdnum við fundarboð, sem engin eru.