309. fundur 03. september 2026 kl. 08:15 - 09:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir formaður
  • Andri Már Óskarsson varaformaður
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Björn Ingi Jónsson ritari
  • Anton Kári Halldórsson varamaður
Fundargerð ritaði: Björn Ingi Jónsson Fjármála- og skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs býður fundarmenn velkomna og setur fund. Formaður óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir gerðar. Gengið er til dagskrár.

1.Ásinn - áætlunarkerfi

2608114

Lagður fram til staðfestingar þjónustusamningur milli Rangárþings eystra og KPMG um Ásinn - áætlanalausn sveitarfélaga.

Ásinn er skýjalausn, SaaS, hönnuð, útfærð, þróuð og rekin af sérfræðingum KPMG. Lausnin er

sérsniðin til að aðstoða sveitarfélög við gerð fjárhagsáætlana. Fjárhagsupplýsingar eru lesnar inn

í gagnagrunn Ássins úr gagnagrunni fjárhagskerfis sveitarfélagsins, sérfræðingar sveitarfélagsins

stofna áætlanagerð, skrásetja eigin forsendur komandi rekstrarárs og Ásinn framkvæmir

útreikninga áætlanagerðar byggðar á forsendum sveitarfélagsins.
Til máls tóku: BIJ, RB, TBM, AKH AMÓ
Byggðarráð samþykkir samhljóað þjónustusamning milli Rangárþings eystra og KPMG um Ásinn.

2.Lóðamál - Langanes 40-51

2607007

Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa vegna lóðamála í Langanesi.
Til máls tóku AKH, RB, TBM, RB AMÓ
Byggðarrað felur skipulags- og byggingarfulltrúa og sveitarstjóra að vinna áfram að úrlausn málsins með lóðarhafa og leggja fram tillögu að lausn fyrir byggðarráð.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

3.Umsókn um lóð - Hallgerðartún 31 - 20.08.2026

2608072

Rafal Ryszard Kikmunter sækir um að fá úthlutað lóðinni Hallgerðartún 31
Hallgerðartún 31 hefur nú þegar verið úthlutað og byggingarframkvæmdir hafnar.
Byggðarráð hafnar lóðarumsókn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

4.Samband sunnlenskra sveitarfélaga; Ársþing SASS 2026 - 29. og 30. október 2026

2608083

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga verður haldið á Hvolsvelli 29. - 30. október 2026. Rangárþing eystra á 5 fulltrúa á þinginu. Kjörgengir eru framkvæmdastjórar sveitarfélaga, sveitarstjórnarmenn og varamenn þeirra.
Tillaga er um að aðalmenn ársþings verði: Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, Andri Már Óskarsson, Hulda Dóra Eysteinsdóttir, Rafn Bergsson og Tómas Birgir Magnússon.

Til vara: Anton Kári Halldórsson, Bjarki Oddsson, Inger Erla Thomsen, Bjarki Freyr Sigurjónsson og Anna Birna Þráinsdóttir.

Aðrir fulltrúar sem sækja þingið: Anton Kári Halldórsson og Bjarki Oddsson.

Tillaga er um að sömu fulltrúar sæki aðalfund Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sem fulltrúar Rangárþings eystra.

Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

5.Umsögn um rekstrarleyfi - Rein 2 Cabin - Ragnheiður Jónsdóttir kt. 230565-5629

2608088

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna umsóknar Ragnheiðar Jónsdóttur um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að Rein 2.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

6.Umsögn um tækifærisleyfi - Sveitabúðin UNA ehf - tónleikar í verslun

2608107

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsöng um tækifærisleyfi fyrir tónleikum í sveitabúðinni Unu.
Jákvæð umsögn hefur nú þegar verið veitt og viðburður hefur farið fram.

7.Skipulags- og umhverfisnefnd - 86

2606016F

Byggðarráð staðfestir fundargerð 86. fundar skipulags- og umhverfisnefndar Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna þarfagreiningu og íbúakönnun varðandi hjólastíga.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Skipulags- og umhverfisnefnd hafnar stækkun lóðarinnar þar sem um grænt svæði er að ræða.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að landskiptin verði samþykkt, með fyrirvara um að fram komi í merkjalýsingu að svæðið tilheyri hverfisverndarsvæði HV5 samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Skipulags- og umhverfisnefnd hafnar breytingu á lóðarmörkum en bendir á aðrar lausar lóðir í götunni sem gætu hent betur.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Byggingarleyfið var grenndarkynnt án athugasemda en við nánari skoðun sést að frístundarhúsið sé staðsett á tóft sem hefur 15 m. helgunarsvæði skv. lögum um menningarminjar nr. 80/2012.
    Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarheimild verði veitt ef að húsinu verði fundinn nýr staður innan lóðarinnar og að helgunarsvæði komi fram á aðaluppdrætti.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 13. apríl til og með 25. maí 2026. Rarik gerir ekki athugasemd við tillöguna og Náttúruverndarstofnun veitti ekki umsögn ásamt Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Vegagerðin fjallar um kröfur veghönnunarreglna komi til að vegurinn fari á vegaskrá en gerir annars ekki athugasemd. Minjastofnun bendir á fornleifar á svæðinu sem ekki hafa verið réttlega skráðar og Veðurstofa Íslands bendir á að viðbragðsáætlun skuli vera tiltæk þar sem svæðið er innan hættusvæðis komi til jökulhlaups.
    Skipulags- og umhverfisnefnd telur framlagða tillögu ekki vera í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins en í kafla 2.2.2 en þar kemur eftirfarandi fram „í dreifbýli skal skilgreina íbúðarbyggð þar sem fjórar lóðir eða fleiri eru samliggjandi“ og að tafla 1 eigi við stakar lóðir. Að því sögðu telur nefndin að breyta þurfi aðalskipulagi fyrir svæðið úr landbúnaðarlandi í íbúðarbyggð.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Skipulags- og umhverfisnefnd telur framlagða tillögu ekki vera í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins en í kafla 2.2.2 en þar kemur eftirfarandi fram „í dreifbýli skal skilgreina íbúðarbyggð þar sem fjórar lóðir eða fleiri eru samliggjandi“ og að tafla 1 eigi við stakar lóðir. Að því sögðu telur nefndin að breyta þurfi aðalskipulagi fyrir svæðið úr landbúnaðarlandi í íbúðarbyggð. Nefndin gerir ekki athugasemd við tillögu fyrir verslunar- og þjónustusvæði.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 12. febrúar til og með 27. mars 2026. Umsagnir bárust frá Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Minjastofnun sem ekki gera athugasemdir. Veðurstofa Íslands bendir á svæðið er skilgreint sem hættusvæði vegna jökulhlaupa og að ekki sé mælt með uppbygginu á svæðinu en fjallað er um viðbragðsáætlun í greinargerðinni. Vegagerðin gerir ekki athugasemd við tillöguna en benda á að æskilegt sé að sýna næstu vegtengingar og þar sem um nýja vegtengingu sé að ræða fer Vegagerðin fram á að það megi nýta vegtenginguna komi til frekari uppbyggingar á svæðinu. Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með Vegagerðinni og Veðurstofu Íslands að því verður bætt við í greinargerð að viðbragðsáætlun skuli vera aðgengileg og það verði heimilt að nýta nýja vegtengingu komi til frekari uppbyggingar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði send til HMS til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. laga nr. 123/2010 með fyrirvara um að brugðist verði við ofangreindum athugasemdum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Skipulags- og umhverfisnefnd telur staðsetninguna hentuga þar sem verið er að nýta núverandi vegtengingu og að um eina lóð er að ræða í tengslum við atvinnurekstur. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst í B-deild stjórnartíðinda og afgreidd í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 16. mars til og með 30. apríl 2026. Náttúruverndarstofnun veitir ekki umsögn, ásamt Rarik og Vegagerðinni. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fer fram á að vatnsból Varmahlíðar verði bætt við í aðalskipulag við næstu endurskoðun. Minjastofnun bendir á að samantekt fornleifa er ekki gild þar sem fornleifaskráning skal vera unnin af faglærðum einstakling með vísan í reglur um skráningu jarðfastra menningarminja nr. 620/2019 en viðbyggingarmöguleikar í tillögunni séu ekki háðir þeirra umsögn.
    Veðurstofa Íslands bendir á að vegna mögulegs flóðs frá Mýrdalsjökli skal hafa viðbragðsáætlun tiltæka og telja nauðsynlegt að gera staðbundið hættumat.
    Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir með Veðurstofu Íslands um að unnið verði staðbundið hættumat fyrir svæðið og að viðbragðsáætlun skuli vera aðgengileg íbúum sem og gestum. Hættumatið skal liggja fyrir innan eins árs.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt og send til yfirferðar til HMS og í kjölfarið afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Aðalskipulagsbreytingin var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 9. apríl til og með 16. júní 2026. Umsagnir bárust frá Land og Skógi og Rangárþingi ytra sem ekki gera athugasemd við breytinguna. Vegagerðin bendir á að varnargarðar á svæðinu séu hugsuð fyrir ræktað land og samgöngumannvirki en ekki fasteignir.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði send til HMS til yfirferðar og afgreidd skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86 Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 9. apríl 2026 til og með 25. maí 2026. Umsagnir bárust frá Náttúruverndarstofnun, Rarik og Minjastofnun sem ekki gera athugasemdir við tillöguna. Vegagerðin bendir á að varnargarðar á svæðinu séu hugsuð fyrir ræktað land og samgöngumannvirki en ekki fasteignir. Veðurstofa Íslands bendir á að viðbragðsáætlun skuli vera tiltæk komi til jökulhlaups en svæðið er innan hættusvæðis.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulagstillagan verði send til HMS til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. laga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 86

8.Skipulags- og umhverfisnefnd - 87

2607002F

Byggðarráð staðfestir fundargerð 87. fundar skipulags- og umhverfisnefndar Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar fyrir framlögð gögn og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna deiliskipulagstillögu sem gerir ráð fyrir nýrri og betri grenndarstöð á Hvolsvelli. Nefndin leggur einnig til að hugað verði að betri möguleikum til flokkunar sorps við fasteignir í eigu sveitarfélagsins t.d. félagsheimili og opin svæði.

  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Skipulags- og umhverfisnefnd tekur jákvætt í framlagða tillögu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa og umhverfis- og garðyrkjustjóra að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við samgöngumatið. Nefndin leggur til að gerð verði breyting á deiliskipulagi við Heimaland og Seljalandsskóla og að framkvæmdaraðilar á svæðinu kynni sér samgöngumatið og hvaða úrbætur þurfi að eiga sér stað.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við landskiptin og leggur til við sveitarstjórn að framlögð merkjalýsing verði samþykkt.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 16. mars til og með 30. apríl 2026. Náttúruverndarstofnun gerir ekki athugasemdir við tillöguna ásamt Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Rarik. Minjastofnun bendir á að svæðið hefur ekki verið fornleifaskráð en við nánari athugun hafi engar minjar verið að sjá og gerir því engar athugasemdir við skipulagið. Veðurstofa Íslands bendir á að erfitt sé að draga úr tjóni vegna mögulegra jökulhlaupa. Viðbragðsáætlun er í gildi en landeigendur skulu kynna sér gildandi áætlun hverju sinni og hafa hana aðgengilega gestum.
    Vegagerðin bendir á breytingar á Hringvegi frá Selfossi að Markarfljóti með svo kallaðri 2 1 lausn og benda á að samnýta þurfi aðkomu frá Dufþaksholti og gefur því ekki jákvæða umsögn á tillöguna. Tillagan hefur verið uppfærð en nú kemur fram í tillögunni að aðkomu verði breytt þegar farið verði í breytingu á þjóðvegi í samráði við Vegagerðina, sveitarfélagið og landeigendur. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur einnig til að ekki verði heimilað að fara í frekari uppbyggingu nema að aðkomuleiðir verði samnýttar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði stend til yfirferðar og afgreidd skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 12. febrúar til og með 27. mars 2026, samhliða deiliskipulagstillögu.
    Vegagerðin gerir ekki athugasemd við breytta landnotkun. Náttúruverndarstofnun telur að tillagan geti haft neikvæð áhrif á landslag og að skýra þurfi skilyrði til að draga úr neikvæðum áhrifum og vísar í 69. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bendir á að fjalla þurfi nánar um vatnsból og verndarsvæði þess.
    Veðurstofa Íslands bendir á að skipulagssvæðið er innan hættusvæðis komi til stórhlaups og því lögð áhersla á að viðbragsáætlanir séu tiltækar gestum.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að brugðist verði við umsögn Náttúruverndarstofnunar í uppfærðri tillögu og frestar því afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Tillagan var send til lögbundinna umsagnaraðila og auglýst frá 12. febrúar til og með 27. mars 2026, samhliða aðalskipulagsbreytingu. Minjastofnun Íslands gerir ekki athugasemd við tillöguna. Vegagerðin gerir ekki athugasemd við tillöguna en setur þó fyrirvara á að vegtengingar geta breyst vegna aukinnar umferðar á svæðinu. Einnig bendir Vegagerðin á að vegurinn geti ekki verið skilgreindur sem héraðsvegur þar sem hann stenst ekki veghönnunarreglur. Veðurstofa Íslands bendir á að skipulagssvæðið er innan hættusvæðis komi til stórhlaups og því lögð áhersla á að viðbragsáætlanir séu tiltækar gestum. Náttúruverndarstofnun veitir ekki umsögn við tillöguna. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir skýringum um hvaðan neysluvatn kemur og að samnýta skuli fráveitukerfi.
    Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Deiliskipulagsbreytingin var grenndarkynnt frá 30. júní til og með 28. júlí 2026 og engar athugasemdir bárust.
    Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði sendi til yfirferðar og afgreidd skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir leyfi fyrir skiltinu. Nefndin bendir að ljósmagni skiltisins skuli stillt í hóf til að valda ekki truflun fyrir vegfarendur og íbúa.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að nýtingarhlutfall lóðarinnar verði að hámarki 0,8 í ljósi athugasemda sem og að krafa verði gerð um að dreifbýlisbragur verði á húsinu.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87 Skipulags- og umhverfisnefnd fer fram á að deiliskipulag verði unnið fyrir svæðið áður en að byggingarleyfi er veitt.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 87

9.Skipulags- og umhverfisnefnd - 88

2608002F

Byggðarráð staðfestir fundargerð 88. fundar skipulags- og umhverfisnefndar Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar fyrir erindið og tekur undir mikilvægi samráðs við Vegagerðina við skipulagsvinnu sveitarfélagsins. Nefndin leggur áherslu á að tekið verði mið af umferðaröryggi og öðrum umferðarmálum við gerð og endurskoðun skipulagsáætlana.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir verðlaunahafa í öllum flokkum.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Auglýsingarskilti var grenndarkynnt fyrir eigendum að Austurvegi 15 og bókaði skipulags- og umhverfisnefnd eftirfarandi við fyrri afgreiðslu málsins:„Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir leyfi fyrir skiltinu. Nefndin bendir á að ljósmagni skiltisins skuli stillt í hóf þannig að það valdi ekki truflun fyrir vegfarendur og íbúa.“

    Athugasemd frá eigendum að Austurvegi 15 barst skipulags- og byggingarfulltrúa í tengslum við grenndarkynningu málsins, en vegna mistaka var hún ekki lögð fyrir nefndina við fyrri afgreiðslu þess. Í ljósi framkominna athugasemda telur skipulags- og umhverfisnefnd ekki unnt að samþykkja auglýsingarskiltið í núverandi mynd vegna ljósmengunar og þeirrar truflunar sem það er að valda íbúum og vegfarendum. Nefndin gerir því kröfu um að ljósaskiltið verði fjarlægt.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu en vísar í 13. gr. reglugerð nr. 577/2017 um staðföng. Nefndin leggur til við sveitarstjónr að merkjalýsingin verði samþykkt með fyrirvara um að staðföngum verði breytt í Dílar I og Dílar II.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins vegna ófullnægjandi gagna.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við stækkun lóðanna og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna breytingu á gildandi deiliskipulagi.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd fellur frá grenndarkynningu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Tillagan var send til umsagnaraðila og auglýst frá 14. nóvember 2025 til og með 6. janúar 2026. Míla og Veitur benda á lagnir á svæðinu sem bera að huga að komi til framkvæmda. Náttúruverndarstofnun og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands veita ekki umsögn en Brunavarnir Rangárvallasýslu benda á að koma þurfi fyrir afkastamiklum brunahönum. Vegagerðin bendir á að fjarlægð milli tenginga séu sýndar ásamt veghelgunarsvæði og gerir athugasemd við að gróðurbelti sé innan veghelgunarsvæðis.
    Skipulags- og umhverfisnefnd hvetur landeigendur til að endurskoða tillöguna vegna nálægðar hringvegarins skv. núverandi aðalskipulagi en að núverandi áform verði endurskoðuð.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88 Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna framlagðri tillögu á meðan verið er að vinna framtíðarsýn hringvegarins í gegnum sveitarfélagið.
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88
  • Skipulags- og umhverfisnefnd - 88

10.Stjórn Njálurefils SES - 22

2608003F

Byggðarráð staðfestir fundargerð 22. fundar stjórnar Njálurefils ses. í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • 10.1 2608019 Njálurefill ses; Stjórn skiptir með sér verkum; 2026-2030
    Stjórn Njálurefils SES - 22 Lögð er fram tillaga um að Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir verði kjörin formaður og Anton Kári Halldórsson ritari.
    Samþykkt samhljóða.
  • 10.2 2608020 Njálurefills ses.;Fjárhagstaða verkefnis
    Stjórn Njálurefils SES - 22 Formaður fer yfir fjárhagstöðu verkefnisins fyrir stjórn.
  • 10.3 2608021 Njálurefill ses; Staða á undirbúningi sýningar
    Stjórn Njálurefils SES - 22 Undirbúningur á sýningu Njálurefils og sögusýningar á Hvolsvelli stendur yfir. Verkefnahópur hefur unnið er að gerð ítarefnis í tengslum við sýninguna og er sú vinna enn í gangi. Næsta skref er að vinna uppfærða heildstæða kostnaðaráætlun fyrir verkefnið, reiknað er með að þeirri vinnu verði lokið nú í haust. Kynningarefni mun í framhaldinu verða unnið ásamt því að nýr vefur verður opnaður.
  • 10.4 2608022 Njálurefill ses; Sýning á Beyeux reflinum í London; Kynnisferð lykilaðila
    Stjórn Njálurefils SES - 22 Unnið er að uppsetningu á Beyeux reflinum í London á British Museum. Fyrirhuguð er ferð stjórnar og annarra lykilaðila á sýninguna nú í nóvember. Einnig munu hagaðilar funda með ýmsum aðilum í safnageiranum í ferðinni til að afla upplýsinga sem munu nýtast við uppsetningu á Njálureflinum á Hvolsvelli.
  • 10.5 2608023 Njálurefill ses; Hollvinafélag Njálurefilsins; Staða mála
    Stjórn Njálurefils SES - 22 Formaður fór yfir nýlegar breytingar á stjórn Hollvinafélags Njálurefilsins. Ísólfur Gylfi Pálmason hefur tekið við formennsku félagsins, Friðrik Pálsson meðstjórnandi og Helga Sigurðardóttir verður áfram gjaldkeri félagsins. Unnið er að skráningu hollvinafélagsins á almannaheillaskrá hjá ríkisskattstjóra.
  • 10.6 2608024 Njálurefill ses; Önnur mál; Ágúst 2026
    Stjórn Njálurefils SES - 22 Formaður fer yfir ýmis önnur mál sem tengjast Njálureflinum. Ferðarefillinn verður settur upp og kynntur á sýningunni Pakhusstrikfestival í Kaupmannahöfn 11.-13. september. Sendiráð Íslands í Danmörku hefur boðið sýningarrými í húsakynnum sínum fyrri hluta árs 2027.

11.Markaðs- og menningarnefnd - 34

2608008F

Byggðarráð staðfestir fundargerð 34. fundar markaðs- og menningarnefndar Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 34 Markaðs- og menningarnefnd þakkar fyrir margar góðar tillögur og komst að sameiginlegri niðurstöðu sem kynntar verða á Kjötsúpuhátíð.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 34 Markaðs- og menningarnefnd er sammála um að núverandi útfærsla af þjónustukortinu er komin til ára sinna. Nefndin leggur til að skoða stafræna og gangnvirka útgáfu af kortinu og útvíkka þjónustuflokka á því. Nefndin vísar málinu til sveitarstjórnar til umfjöllunar og felur markaðs- og menningarfulltrúa að fylgja málinu eftir.
  • Markaðs- og menningarnefnd - 34 Markaðs- og mennignarnefnd leggur til að markaðs- og kynningarfulltrúi fái skýrsluna beint. Hún felur einnig markaðs- og menningarfulltrúa að kanna hvort hægt sé að klæðskerasníða skýrsluna betur að þörfum sveitarfélagsins. Eins að kanna hvort hægt sé að fá hana örar eða í runtíma. Sé það ekki hægt leggur hún til að hætta áskriftinni.

12.Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd - 81

2608014F

Byggðarráð staðfestir fundargerð 81. fundar Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar Rangárþings eystra í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd - 81 Andri Már og Helgi Valur vikja af fundi. Bjarki og Ólafur komi inn sem varamenn.
    Nefndarmenn völdu íþróttamann ársins út frá þeim tilnefningum sem bárust. Íþróttamaður ársins verður tilkynntur nk laugardag á Kjötsúpuhátíðinni á Hvolsvelli.
    Íþrótta og æskulýðsfulltrúi mun boða öll þau sem tilnefnd eru og verða þau öll kölluð upp á svið og veitt viðurkenning.
  • Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd - 81 Andri Már og Helgi Valur koma aftur á fund. Ólafur víkur af fundi en Bjarki situr áfram sem varamaður fyrir Söndru Sif.
    Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti nefndarmönnum drög að samningi sem lagður hefur verið fyrir sveitarstjórn varðandi hreyfingu eldri borgara.
  • Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd - 81 Nefndarmenn lögðu til að dagskráin verði vel kynnt og komu með hugmyndir sem unnið verður áfram með
  • 12.4 2608048 Frístundabíll
    Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd - 81 Nefndarmenn tóku vel í hugmynd og var íþrótta og æskulýðsfulltrúa falið að halda áfram að vinna hugmyndina og koma með drög ekki seinna en fundinn í október.
  • Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd - 81 Íþrótta og æskulýðsfulltrúi kynnti verkefnið frá KSI en upplýsti jafnframt að aðeins tveir vellir verða settir upp á Íslandi á þessu ári og svo tveir á því næsta. Nefndarmenn lögðu til að send yrði inn umsókn og staðsetning yrði fundin í samráði við skipulags- og byggingafulltrúa ásamt sveitarstjóra.
  • Heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefnd - 81 Nefndarmenn ræddu íþrótta- og afrekssjóðinn. Var ýmislegt rætt og ákveðið að taka reglugerð sjóðsins til gagngerðar endurskoðunnar og ljúka þeirri vinnu á þessu ári.

13.Stjórn Gamla bæjarins í Múlakoti ses - 26

2608018F

Byggðarráð staðfestir fundargerð 26. fundar Stjórnar Gamla bæjarins í Múlakoti ses. í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • 13.1 2607051 Gamli bærinn í Múlakoti; Ársreikningur 2025
    Stjórn Gamla bæjarins í Múlakoti ses - 26 Björn Ingi Jónsson fer yfir fyrirliggjandi ársreikninga Gamla bæjarins í Múlakoti.
    Stjórn þakkar Birni Inga fyrir greinargóða yfirferð ársreikninga.
    Stjórn samþykkir samhljóða ársreikninga Gamla bæjarins í Múlakoti fyrir árin 2024 og 2025.
  • 13.2 2608099 Gamli bærinn í Múlakoti; Tilkynning um breytingu á stjórn
    Stjórn Gamla bæjarins í Múlakoti ses - 26 Stjórn Gamla bæjarins í Múlakoti verður skipuð með eftirfarandi hætti kjörtímabilið 2026-2030.

    Guðjón Stefán Guðbergsson, formaður
    Anton Kári Halldórsson, meðstjórnandi
    Andri Guðumundsson, meðstjórnandi
    Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, varamaður
    Guðbjörg Konráðsdóttir, varamaður
    Sigríður Hjartar, varamaður

    Samþykkt samhljóða.

14.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar 2. fundur kjörtímabilsins 2026-2030

2608043

Fundargerð lögð fram til kynningar.

15.Félags - og skólaþjónusta; 101. fundur stjórnar - 25.08.2026

2608115

Byggðarráð staðfestir viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við 1. dagskrárlið fundarins.
Að öðru leyti er fundargerð staðfest í heild sinni.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

16.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar; Gróðurskoðunarferð 04.06.26

2608044

Fundargerð lögð fram til kynningar.

18.Almenningar; Beiðni um upplýsingar vegna stjórnsýslukæru

2608077

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:00.