308. fundur 06. ágúst 2026 kl. 08:15 - 09:11 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir formaður
  • Hulda Dóra Eysteinsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Andri Már Óskarsson
  • Rafn Bergsson aðalmaður
  • Tómas Birgir Magnússon áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Björn Ingi Jónsson ritari
  • Anton Kári Halldórsson varamaður
Fundargerð ritaði: Björn Ingi Jónsson Fjármála- og skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður byggðarráðs býður fundarmenn velkomna og setur fund. Formaður óskar eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir gerðar.

1.Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi - Kjötsúpuhátíð 2026 - 27.08.2026 - 30.08.2026

2607065

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna umsóknar um tækifærisleyfi fyrir Kjötsúpuhátíðinni 2026 í Rangárþingi eystra.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Til máls tóku TBM, HDE, AKH, RB
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

2.Umsagnarbeiðni - tækifærisleyfi - Samkirkjulegt mót Hvítasunnumanna 30.07.2026 - 03.08.2026

2607058

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna Kotmóts 2026.
Jákvæð umsögn hefur þegar verið veitt og viðburður hefur verið haldinn.

3.Umsagnarbeiðni -Sky Retreat Iceland Ormskoti - breyting - 30.07.2026

2607076

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna umsóknar um breytingu á gildandi rekstrarleyfi fyrir gistingu í Ormskoti.
Sveitarstjóra falið að veita umsögn þegar umsagnaraðilar á vegum sveitarfélagsins hafa veitt sína umsögn.
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.

4.Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi - Flughátíð Múlakoti

2607075

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn Rangárþings eystra vegna Flughátíðar í Múlakoti.
Jákvæð umsögn hefur þegar verið veitt og viðburður hefur verið haldinn.

5.Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 91

2607004F

Fundargerð 91. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu staðfest í heild sinni.
Til máls tóku AKH,
Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 91 Tillaga er um að Anton Kári Halldórsson verði formaður, Eggert Valur Guðmundsson varaformaður og Helga Björg Helgadóttir ritari.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 91 Björn Ingi Jónsson fjármálastjóri fer yfir rekstraryfirlit frá jan-júní 2026. Rekstur er í góðu jafnvægi og á áætlun.
    Lagt fram til kynningar.
  • Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 91 Lögð fram tillaga að starfslýsingu vegna nýs stöðugildis varaslökkviliðsstjóra Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
    Slökkviliðsstjóra og formanni falið að vinna málið áfram og auglýsa starfið í samráði við ráðningaskrifstofu.
    Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.
  • Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. - 91 Slökkviliðsstjóri fer yfir hin ýmsu mál er snúa að starfsemi Brunavarna Rangárvallasýslu bs.

    Góður árangur hefur náðst í menntun slökkviliðsmanna og fjölgun á löggiltum reykköfurum.

    Komið er að endurskoðun brunavarnaráætlunar og er sú vinna hafin.

    Rætt um samning milli Brunavarna og Landsvirkjunnar sem snýr að ráðningu starfsmanns Brunavarna á virkjanasvæðum. Mikilvægt er að ganga frá þeim samningi sem fyrst og auglýsa starfið.

    Rætt um fyrirkomulag starfsemi útkallsliðs og bakvakta Brunavarna Rangárvallasýslu bs.

    Rætt um fyrirkomulag eldvarnareftirlits og hversu umfangsmikið það er í tilfelli Brunavarna Rangárvallasýslu.

    Rætt um stöðu á bíla og búnaðarmálum hjá Brunavörnum.

6.Félags - og skólaþjónusta; 100. fundur dtjórnar - 30.06.2026

2607053

Fundargerð lögð fram til kynningar.
Til máls tóku HDE,

7.Héraðsnefnd Rangæinga; 1. fundur kjörtímabilið 2026-2030

2607040

Til máls tóku AKH,
Fundargerð lögð fram til kynningar.

9.Stjórnarfundur Héraðsbókasafns Rangæinga; 13.05.2026

2605049

Fundargerð lögð fram til kynningar.

10.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs; 257. fundur - 20.07.2026

2607063

Til máls tóku RB, AKH, TBM, HDE
Fundargerð lögð fram til kynningar.

11.Gamli bærinn í Múlakoti; 25. fundur stjórnar

2607061

Til máls tóku AKH, RB,
Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.Fjallskilanefnd Fljótshlíðar 1. fundur kjörtímabilsins 2026-2030

2607069

Til máls tóku AKH, RB, HDE, TBM
Fundargerð lögð fram til kynningar.

13.Fjallskilanefnd Vestur-Eyjafjalla 1. fundur kjörtímabilsins 2026-2030

2607070

Til máls tóku AKH TBM,
Fundargerð lögð fram til kynningar.

14.Orkusveitarfélag - kynning til sveitarfélaga

15.Fjölmiðlaskýrsla janúar - júní 2026

2607054

Lagt fram til kynningar. Vísað til kynningar í Markaðs- og menningarnefnd.

Fundi slitið - kl. 09:11.