180. fundur 24. apríl 2019 kl. 08:15 - 09:40 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Elín Fríða Sigurðardóttir formaður
  • Christiane L. Bahner
  • Benedikt Benediktsson varaformaður
Starfsmenn
  • Árný Lára Karvelsdóttir ritari
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Árný Lára Karvelsdóttir Markaðs- og kynningarfulltrúi
Dagskrá

1.Nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu; umsögn í samráðsgátt

1904067

Umsögn um tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- verndaráætlun við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands.
Rangárþing eystra gerir ekki efnislegar athugasemdir við textadrög varðandi helstu áherslur í stjórnunar- og verndaráætlun við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. Mikilvægt er að lögð sé áhersla á verndun ósnortinar náttúru og almenna nýtingu hálendis við skipulagsgerð. Nú þegar hafa sveitarfélög á Suðurlandi hafið vinnu við að kanna möguleika á að vinna svæðisskipulag fyrir Suður hálendið. Ljóst er að mikil vinna er framundan á því sviði, en sú vinna er unnin í réttri röð og af réttum aðilum þ.e. sveitarfélögunum. Út úr þeirri vinnu gæti mögulega komið sú niðurstaða að sveitarfélög á Suðurlandi séu tilbúin að leggja hluta af hálendinu í þjóðgarð, en það er þá út frá forsendum sveitarfélaganna. Rangárþing eystra gerir því talsverðar athugasemdir við þær fyrirætlanir að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendi Íslands. Nefnd sem skipuð var af umhverfis- og auðlindaráðherra á vordögum 2018 hefur verið að vinna að því hvernig eigi að stofna miðhálendisþjóðgarð yfirleitt. Svo virðist sem að gleymst hafi að velta því fyrir sér hvort það ætti að fara í þá vegferð. Talsvert mikið af spurningum er enn ósvarað varðandi þann mikilvæga þátt. Vissulega hefur ágætis samráð átt sér stað á milli nefndarinnar og sveitarfélaga, en þar hefur líka talsvert borið á því að sveitarfélög eru frekar neikvæð í umræðunni og með varann á. Það er vel skiljanlegt á margan hátt og eðlilegt að sveitarfélög fari í baklás þegar að þverpólitísk nefnd er byrjuð að vinna að skipulagsmálum sveitarfélaga t.d. með að ákvarða mörk nýs þjóðgarðs, aðkomuleiðir, áningastaði og uppbyggingu. Það er og á að vera hlutverk sveitarfélaganna. Að mati Rangárþings eystra er mikilvægt að spólað verði aðeins til baka og umræðan um hvort eigi að stofna þjóðgarð verði tekin við sveitarfélögin.

Samþykkt samhljóða

2.Almenningar; Ósk um styrk til landgræðslu

1904238

Landeigendafélag Almenninga óskar eftir styrk til landgræðslu á Almenningum að upphæð kr. 300.000.
Byggðarráð Rangárþings eystra samþykkir samhljóða að styrkja landgræðslu á Almenningum um 300.000 kr.

3.279. fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands; 9.4.2019

1904227

Fundargerð staðfest í heild.

4.65. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu; 14.3.2019

1903214

Fundargerð staðfest í heild.

5.46. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs

1904237

Liður 2; Þorvaldseyri

Byggðarráð Rangárþings eystra samþykkir fyrir sitt leiti aukið fjármagn til Kötlu jarðvangs vegna opnunar gestastofu á Þorvaldseyri. Byggðarráðið beinir því til Kötlu jarðvangs að nýta það fjármagn sem nú þegar er fyrir hendi og hafa að leiðarljósi að gestastofan verði sjálfbær eining í framtíðinni.

Fundargerðin samþykkt samhljóða að öðru leiti.




6.203. fundur Sorpstöðvar Rangárvallasýslu; 10.4.2019

1904243

Liður 3

Liðnum vísað til Umhverfis- og náttúrverndarnefndar til umfjöllunar og nefndinni falið að útbúa tillögur til sveitarstjórnar.

Fundargerðin samþykkt samhljóða að öðru leiti.

7.545. fundur stjórnar SASS; 4.4.2019

1904242

Fundargerð staðfest í heild.

8.Samband íslenskra sveitarfélaga; Stjórnarfundur nr. 870

1904228

Fundargerð staðfest í heild.

9.195. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands

1904229

Fundargerð staðfest í heild.

10.Samráðsfundur við Vegagerð

1904239

Lagt fram til kynningar

11.Safnmappa; þingsályktanir og frumvörp til umsagnar 2019

1902326

Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 09:40.