168. fundur 02. júlí 2026 kl. 10:00 - 11:00 á skrifstofu sveitarfélagsins
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Úthlutun fasteignanúmera - Hallgerðartún 51

2606090

Tekið er fyrir erindi GG Tré ehf. um fasteignanúmer vegna fyrirhugaðrar eignaskiptayfirlýsingar fyrir Hallgerðartún 51. Sótt hefur verið um og greitt fyrir níu ný fasteignanúmer, sem verða stofnuð út frá fasteignanúmerinu F2528590.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd.

2.Eignaskiptayfirlýsing - Hallgerðartún 51

2606095

Verið er að skipta Hallgerðartúni 51, matshluta 01, upp í 10 séreignir úr fasteignanúmerinu F2528590.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd.

3.Umsókn um byggingarleyfi - Lindartún 163957 - Umfangsflokkur 2

2606117

Stjörnumót ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 442,5 m² gistihús á Lindartún, L163957. Sigurður Unnar Sigurðsson skilar inn aðaluppdrætti, dags. 30. júní 2026.
-Vísað til nefndar-

4.Umsókn um byggingarheimild - Hái-Múli lóð A - Umfangsflokkur 1

2604012

Sótt er um byggingarheimild fyrir 65,0 m² frístundarhúsi að Háa-Múla lóð 1, L164093. Páll Hjaltdal Zóphóníasson skilar inn aðaluppdráttum dags. 7. apríl 2026.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og byggingarleyfi verður veitt á grunni grenndarkynningar.
Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 11:00.