Verið er að stofna níu ný fasteignanúmer fyrir Ormsvöll 17, F2513737.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við fjölgun fasteignanúmera við Ormsvöll 17.
2.Ósk um skilti eða staðvísir - Southcoast, við Austurvegur 15
2605027
Óskað er eftir leyfi fyrir ljósaskilti sem sýnir breytilegar myndir/myndbönd (3x3 m) á vegg hússins við Austurveg 15, skv. framlagðri tillögu.
Vísað til nefndar.
3.Umsókn um byggingarleyfi - Bergþórugerði 16 - Umfangsflokkur 2
2605025
Geir Sigurðsson Waage óskar eftir byggingarleyfi fyrir 253,7 m² einbýlishús með bílgeymlu, í Bergþórugerði 16, L239190. Haraldur Sigmar Árnason skilar inn aðaluppdrætti, dags. 11. maí 2026.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1. gr. byggingarreglugerðar.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á því að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
- Staðfesting á því að lífsferilsgreining hafi verið skilað til HMS.
4.Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagn við Austurveg - Happy pancakes
2605001
Katerina Plamenova Yordanova sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagni við Austurveg á Hvolsvelli til 31.10.2026.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsókn og veitir stöðuleyfi til 31.10.2026.
5.Umsögn um starfsleyfi - Naglasúpa ehf. kt. 640320-0790 - Laufey Welcome Center Bistro
2605008
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna leyfi til reksturs að Laufey Welcome Center Bistro, Brúnir 1,L227590.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu starfsleyfis.