153. fundur 29. janúar 2026 kl. 10:00 - 11:00 í Hvolnum Hvolsvelli
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Merkjalýsing - Dalsbakki 1, L240901

2601057

Verið er að stofna lóðina Dalsbakki 1 úr Dalsbakka 3-11 og Öldubakka 4.
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.

2.Umsókn um byggingarleyfi - Heylækur 8 - Umfangsflokkur 2

2601059

Guðmundur Óli Gunnarsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir 130,4 m² einbýlishús á Heylækur 8, L234629. Gunnar Bogi Borgars skilaði inn aðaluppdráttum 26. janúar 2026.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1. gr. byggingarreglugerðar.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á því að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
- Staðfesting á því að lífsferilsgreining hafi verið skilað til HMS.

3.Umsókn um byggingarheimild - Þverártún 2 - Umfangsflokkur 1

2601058

Ólafur Þór Guðmundsson óskar eftir byggingarleyfi fyrir 134,0 m² frístundarhús á Þverártún 2, L200662. Emil Þór Guðmundsson skilaði inn aðaluppdráttum 26. janúar 2026.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við
athugasemdir byggingarfulltrúa.
Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

4.Umsókn um byggingarleyfi - Dalsbrekka - Umfangsflokkur 2

2601086

Búðingar ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir 499,6 m² búsetukjarni með 6 sérbýlum og starfsmannarými við Dalsbrekku, L240901. Kristján Bjarnason skilaði inn aðaluppdráttum 29. janúar 2026.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1. gr. byggingarreglugerðar.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, uppfærðir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
- Staðfesting á því að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
- Staðfesting á því að lífsferilsgreining hafi verið skilað til HMS.

5.Umsögn um starfsleyfi - Sámsstaðir 3 - Melkvist ehf - 26.01.2026

2601077

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi að Sámsstaðir 3, L164060.

Fundi slitið - kl. 11:00.