151. fundur 08. janúar 2026 kl. 10:00 - 12:00 í Hvolnum Hvolsvelli
Nefndarmenn
  • Þóra Björg Ragnarsdóttir embættismaður
  • Ólafur Rúnarsson embættismaður
  • Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri
  • Karin Weissenegger embættismaður
Fundargerð ritaði: Karin Weissenegger Aðstoðarmaður Byggingarfulltrúa
Dagskrá

1.Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagn við miðbæ Hvolsvallar - The food Truck co.

2512027

The Food Truck Company ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir matarvagni við Austurveg á Hvolsvelli til 12 mánaða.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi til 12 mánaða frá 8. jánuar 2026 og vísar í samþykkt um sölu- og matarvagna í Rangárþingi eysta.

2.Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagn við miðbæ Hvolsvallar - Gallerý Pizza

2601016

Gengur ehf. óskar eftir stöðuleyfi fyrir matarvagni við Austurveg á Hvolsvelli til 12 mánaða.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi til 12 mánaða frá 8. jánuar 2026 og vísar í samþykkt um sölu- og matarvagna í Rangárþingi eysta.

3.Umsókn um byggingarheimild - Smiðjukot - breyta notkun

2601005

María Svavarsdóttir óskar eftir breytingu á notkun fyrir 51,5 m² sumarbústað í íbúðarhús að Kanastaðir lóð, L186771. Gretar Markússon skilar inn aðaluppdráttum, dags. 30. desember 2025.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

Fundi slitið - kl. 12:00.