Starf fulltrúa á skrifstofu Rangárþings eystra er laust til umsóknar. Starfshlutfall er 60%.

Starfssvið

  • Umsjón með bókhaldi, reikningagerð, afstemmingu og innheimtu hjá byggðarsamlögum í eigu Rangárþings eystra.
  • Skil á vsk, afstemmingar, uppgjör og vinnsla bókhalds.
  • Gerð reikninga fyrir hönd Rangárþing eystra.
  • Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu sveitarfélagsins.

Hæfniskröfur og menntun:

  • Stúdentspróf
  • Viðurkenndur bókari eða sambærileg menntun skilyrði
  • Reynsla og góð þekking á bókhaldi er skilyrði og þekking á bókhaldi sveitarfélaga mikill kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla af Navision bókhaldskerfi skilyrði
  • Nákvæmni og skipulagni í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar

 

Starfskjör og laun eru í samræmi við samninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Margrét Jóna Ísólfsdóttir skrifstofu- og fjármálastjóri, sími 488-4200. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf sem ber að skila á netfang margretjona@hvolsvollur.is fyrir 15. september 2020.