English below
Héraðsbókasafnið er þátttakandi í verkefninu Vettvangur samsköpunar eða Community Co-Creation. Við viljum að bókasafnið okkar allra sé vettvangur fyrir sköpun, við höfum því ákveðið að opna Verkstæði HBR. Á verkstæðinu geta gestir fengið lánuð ýmiskonar tæki og tól til að vinna með á safninu t.d. þrívíddarprentari, Cricut joy skurðarvél, pappírsþrykkir, ýmiskonar munsturgatarar, beltagatari, smellutöng, ljósmyndaskanni, plöstunarvél og límbyssa auk þess sem við stefnum á að bæta jafnt og þétt við verkfærum. Einnig eigum við gott úrval af skrautpappír, límmiðapappír, pappír til að strauja myndir á tau, frauðarkir og ljósmyndapappír. Enginn kostnaður fylgir notkuninni en allt efni verður selt á kostnaðarverði. Á facebook síðu Héraðsbókasafnsins má sjá myndir og myndbönd af ýmsu sem við höfum verið að gera, þar eru einnig hlekkir á forrit og öpp sem þarf fyrir þrívíddarprentarann og Cricut joy skurðarvélina og verðskrá.
Á opnunarviðburðinum munu starfsmenn og vinir safnsins kynna þrívíddarprentarann, Cricut joy skurðarvélina og pappírsþrykkjarann og gefst þá gestum kostur á að skoða, prófa og skapa sér að kostnaðarlausu.
 
The county library participates in the Community Co-Creation project. We want the library, which belongs to all of us, to be a platform for creativity and have therefore opened the HBR Workshop. At the workshop, visitors can borrow various tools to work with in the museum, e.g. 3D printer, Cricut joy cutting machine, paper printers, various pattern punchers, photo scanner, plastering machine and glue gun as well as we aim to steadily add tools. We also have a good selection of decorative paper, sticker paper, paper for ironing pictures on cloth, foam sheets and photo paper.
There is no cost associated with the use and all material will be sold at cost price. On the Facebook page of the County Library you can see photos and videos of various things we have been doing, there are also links to programs and apps needed for the 3D printer and the Cricut joy cutting machine and a price list.
At the opening event, staff and friends of the museum will introduce the 3D printer, Cricut joy cutter and paper printer, giving visitors the opportunity to explore, try and create for free.