Krílaíþróttir verða í Íþróttahúsinu sunnudaginn 17. október kl. 10. Krílaíþróttir eru fyrir 2-3 ára börn og eru í umsjón Unnar Lilju Bjarnadóttur, sjúkraþjálfara.
Í Krílaíþróttunum er forráðamaður virkur með og fylgir barninu allan tímann. Planið er að byrja á 6 skiptum og ef mæting verður góð er möguleiki á að bæta við skiptum.
Nánari upplýsingar má fá hjá Unni Lilju, unnurliljabjarna@gmail.com
Þessi tími er hluti af Heilsueflandi hausti sem stendur yfir frá 20. september - 17. október. Fylgist með viðburðum á heimasíðu Rangárþings eystra