Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélag Rangæinga verður laugardaginn 16.12 n.k í Bolholtsskógi milli kl.12 og 15. Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré. Eingöngu er um stafafuru að ræða. Við verðum að auki með á plani tilhöggið greni og furu. Óski fólk eftir að koma og velja sér sjálf greni er hægt að hafa samband og við finnum út úr því. Sem fyrr er hægt að panta tré og er afhending eftir samkomulagi. Nú erum við með "tröpputré" til sölu, þau er hægt að panta en verða einnig til sölu samhliða jólatrjáasölunni.
Upplýsingar í síma: 8692042