Stofubandið mun spila ljúfa jólatóna í Breiðabólsstaðarkirkju, laugardagskvöldið 30 nóvember kl 21:00, ásamt barnakór Hvolsskóla undir stjórn Ingibjargar Erlings.

Hljómsveitina skipa söngkonan Þóra Þórisdóttir, Sævar Þór Guðmundsson á bassa, Markús H. Guðmundsson á gítar og Guðmundur Fannar Markússon á slagverk.

Komdu þér í jólaskapið fyrstu aðventuhelgina.
Frítt inn og allir velkomnir, ungir sem aldnir!

Sjáumst 30 nóvember í jólastemningu! :)