Fyrirlesturinn Húmor Virkar hefur notið vinsælda undanfarin misseri og fengið hreint frábærar viðtökur og dóma í hvert sinn. Fyrirlesturinn er mjög skemmtilegur en líka fræðandi og samanstendur m.a. af niðurstöðum viðamikilla rannsókna og vinnu á virkni húmors á heilsu, sem er umtalsverð, og sem árangursaukandi afl í atvinnulífinu og lífinu almennt. Hægt er að sjá umsagnir og dóma á www.humorvirkar.is

Höfundur og fyrirlesari er Sveinn Waage Hann starfar sem markaðsstjóri hjá Svarinu ehf. sem m.a. setur upp nýju þjónustumiðstöðina á Landeyjarhafnarafleggjaranum hér í Rangárþingi. En að auki, undanfarið ár, hefur Sveinn verið víðsvegar að flytja þennan fyrirlestur; Húmor Virkar. Hann hlakkar mikið til að koma til okkar með þennan dásamlega boðskap og vonast til að sjá sem flesta.