Laugardaginn 9. október koma þau Ingi og Linda frá ITS Transformation og halda fyrirlestur sem nefnist Hugarfar - heilsa - mataræði.

Þetta verður peppfundur þar sem komið er inn á hugarfar, hegðun, erfiðu hlutina, hvíld, æfingar og macros.

Happadrættisleikur í boði NOW vítamína svo að það er til mikils að vinna

Fyrirlesturinn verður í matsal Hvolsskóla kl. 12:00 

Macros-aðferðin eða makrósumataræðið, byggir á því að vigta og skrá allt sem þú lætur ofan í þig til að tryggja að þú sért að fá þá næringu sem þú þarft í réttum hlutföllum. Með aðferðinni sérðu hvað þú ert að borða, hvort og þá hvað þú ert að gera vitlaust og þú getur þá bætt úr því. Aðferðin byggir ekki á því að banna neinn mat, aðeins að auka meðvitund um hvaða næring er í matnum og hversu mikið við þurfum af honum.

ITS Macros verður með gjafaleik.