Valdimar Guðmundsson syngur hugljúf jólalög í nýjum útsetningum með hljómsveit sinni, LÓN. Sérstakur gestur: RAKEL. --- Hljómsveitin LÓN með söngvarann Valdimar í broddi fylkingar flytur óvæntar útgáfur af þekktum jólaperlum. Sérstakur gestur er söngkonan RAKEL. Jólaplatan „5 mínutur í jól“ kom út í desember í fyrra og vann sig heldur betur í hjörtu hlustenda. Nú gefst fólki tækifæri til að heyra plötuna flutta á svið í notalegu umhverfi víðsvegar um landið.
Húsið opnar klukkan 20:00 og tónleikarnir hefjast klukkan 20:30