VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 50% stöðu sem fyrst.

VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“. Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

Meginverkefni:

  • Veita stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu.
  • Umsjón verkefna starfsstöðvarinnar.
  • Veita persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs.
  • Skipuleggja og forgangsraða störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmenn.

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu í starfi með fötluðu fólki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Almenn tölvu kunnátta æskileg
  • Hreint sakarvottorð

Umsóknafrestur til 28 janúar 2022

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi ragnhildur@arborg.is eða í síma 480-6920 og 899-7254

Umsóknum skal skilað á netfangið ragnhildur@arborg.is eða lilja@hvolsvollur.is

Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.

Öllum umsóknum verður svarað.