VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða deildastjóra í 55% stöðu frá 1. desember n.k. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Verður unnið eftir hugmyndafræðinni „þjónandi leiðsögn“ og „sjálfstætt líf“. Um er að ræða nýja starfseiningu á Hvolsvelli svo deildarstjóri mun hafa tækifæri til að móta og þróa starfsemina í samstarfi við VISS á Selfossi. Deildarstjórinn vinnur samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

Helstu verkefnin eru :

  • Daglegt utanhald um rekstur og starfsemina
  • Starfsmannahald
  • Móta stefnu og markmið þjónustunnar í samráði við forstöðumann
  • Verkefnaöflun og að verkefni sé við hæfi hvers og eins

Helstu markmið starfsins eru:

  • Faglegt starf með fötluðu fólki
  • Leiðbeina, styðja og hvetja
  • Skapa öryggi og vellíðan á vinnustað
  • Efling sjálfsákvörðunarréttar fatlaðs fólks

Hæfniskröfur:

  • Menntun í þroskaþjálfa/iðjuþjálfun
  • Reynslu af stjórnun og starfsmannahaldi
  • Leiðtoga og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Almenn tölvukunnátta æskileg

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags og/eða Iðjuþjálfafélags Íslands.

Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.

Öllum umsóknum verður svarað.