VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða deildarstjóra á Hvolsvelli

VISS vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða deildastjóra sem allra fyrst í 55% stöðu sem getur aukist með vorinu. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu sem vinnur eftir hugmyndafræði „þjónandi leiðsögn“ og „sjálfstætt líf. Um er að ræða nýja starfseiningu á Hvolsvelli sem hóf starfsemi í janúar 2021. Deildarstjórinn vinnur  samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

Helstu verkefnin eru :

  • Daglegt utanumhald um rekstur og starfsemina
  • Starfsmannahald
  • Móta stefnu og markmið þjónustunnar í samráði við forstöðumann
  • Verkefnaöflun og að verkefni sé við hæfi hvers og eins
  • Utanumhald um skráningar og vistun skjala

Helstu markmið starfsins eru:

  • Faglegt starf með fötluðu fólki
  • Leiðbeina, styðja og hvetja
  • Skapa öryggi og vellíðan á vinnustað
  • Efling sjálfsákvörðunarréttar fatlaðs fólks

Hæfniskröfur:

  • Menntun í þroskaþjálfa eða háskólapróf (BA/BS) á sviði uppeldis- eða félagsvísin
  • Reynslu af stjórnun og starfsmannahaldi
  • Leiðtoga og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Almenn tölvukunnátta æskileg
  • Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga, þroskaþjálfafélags Íslands

Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.

Öllum umsóknum verður svarað.