Eins og fyrri ár er Vinnuskóli Rangárþings eystra starfræktur og nú eru það krakkar fæddir 1997 - 2000 sem að fá vinnu hjá sveitarfélaginu. Krakkarnir hafa ekki fengið hið besta veður núna í byrjun sumars en láta það ekki á sig fá og standa sig að sjálfsögðu með prýði.