Vinnuskóli Rangárþings eystra hefst mánudaginn 3. júní 2019 kl. 9:00.

Ungmenni sem fædd eru 2003 - 2006 og hafa áhuga á því að starfa hjá vinnuskóla Rangárþings eystra í sumar er bent á að senda inn umsóknir fyrir 23. maí n.k. Vinnuskólinn verður starfræktur frá kl. 9:00 - 16:00 alla virka daga frá 3. júní til 31. júlí.  Ungmenni fædd 2006 geta fengið vinnu frá kl. 9:00 - 12:00 eða kl. 13:00 - 16:00.

Umsóknareyðublöð er að finna á skrifstofu eða heimasíðu Rangárþings eystra en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu sveitafélagsins í síma 488-4200, þar sem tekið verður við umsóknum í síma.

Starfsfundur með flokkstjórum, starfsmönnum vinnuskólans og foreldrum þeirra verður í félagsmiðstöðinni (féló) fimmtudaginn 30. maí kl: 17:30. Þar verður farið yfir starfið, skyldur og réttindi starfsmannanna. Æskilegt er að allir mæti.

Ólafur Örn Oddsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Rangárþings eystra.