Nú stendur yfir samráðsferli vegna endurskoðunar skólastefnu sveitarfélagsins. Íbúafundur var haldinn, starfsfólk skólanna hefur rýnt í skólastarfið og stýrihópur fundar reglulega og heldur utan um þau gögn sem verða til.

Nú óskar stýrihópurinn eftir því að fá álit á núverandi stöðu og aðstæðum frá foreldrum, ömmum og öfum, frænkum, frændum og öðrum þeim íbúum sem vilja leggja sitt af mörkum.

Mat á fortíð og núverandi stöðu er grunnurinn að því að sjá hvað þarf að gera til að ná þeirri framtíðarsýn sem sveitarfélagið hefur sett og er nú í endurskoðun. Bilið á milli ríkjandi ástands og framtíðarsýnar þarf að brúa og markmið sem eru sett og verða endurskoðuð til lengri og skemmri tíma miða að því.

Stöðumatið gerir sveitarfélaginu kleift að skilgreina mikilvæg viðfangsefni. Afrakstur þess er notaður til að móta stefnuna, markmiðin og leiðirnar sem á að færa skóla- og tómstundastarf nær framtíðarsýninni.

Hér er hlekkur á könnunina sem er nafnlaus: https://forms.gle/GgghVTgDCM77occq6

Takk fyrir að leggja þitt af mörkum-það er mikilvægt!

Stýrihópur um endurskoðun skólastefnu