Það verður ýmislegt í boði í Rangárþingi eystra í þessari viku sem að tengist Leyndardómum Suðurlands.

Héraðsbókasafn Rangæinga á Hvolsvelli

31. mars – 4. apríl, á opnunartíma safnsins.
Sýning um ævi og starf Guðrúnar frá Lundi. 
Guðrún frá Lundi er höfundur mánaðarins hjá Bókmennta- og kjötsúpufélagi Rangárþings eystra. 
Af því tilefni verður sýning tileinkuð Guðrúnu á bókasafninu þar sem hægt verður að kynna sér verk hennar og æviþætti. 

Jeppaferð á Eyjafjallajökul
Frá Hamragörðum, 28. mars – 6. apríl kl. 10:00
Southcoast adventure verður með jeppaferðir upp að toppgíg Eyjafjallajökuls alla daga Leyndardómanna eða frá 28. mars – 6. apríl. Lagt er af stað frá Hamragörðum kl. 10:00. Upp við toppgíginn er útsýnið yfir Vestmannaeyjar og sveitina stórbrotið og tekur ferðin ca. 4-5 klst. Verð kr. 15.900. – pr. mann. Bóka þarf kvöldinu fyrir áætlaða ferð í síma: 867 3535

Gestastofan Þorvaldseyri
28. mars – 6. apríl, kl. 11:00 – 17:00

Í Gestastofunni geta menn fræðst um eldgosið í Eyjafjallajökli og afleiðingar þess. Verð kr. 500 á mann, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Kyrrðarbæn í Stórólfshvolskirkju
Þriðjudaginn 1. apríl kl. 18:00 – 19:00
Kyrrðar bæn / Centering prayer er einstök og persónubundin leið sem býr okkur undir það að vera opin gagnvart Guði. Henni er ekki ætlað að koma í staðinn fyrir önnur form bæna, heldur má segja að Centering prayer auki dýpt þeirra.
Kyrrðarbæn iðkuð undir stjórn Margrétar Guðjónsdóttur.
http://kristinihugun.is/

Blómagarðurinn, garður áhugamannsins
Fimmtudaginn 3. apríl, kl. 20:00 í Hvolsskóla, Hvolsvelli
Kristleifur Guðbjörnsson flytur leyndardómsfullt erindi sem hann nefnir „Blómagarðurinn, garður áhugamannsins.“ Í erindinu fjallar Kristleifur um rósir, lauka, liljur, dalíur og ýmsar fjölærar plöntur, allt tegundir sem dafna vel á Íslandi. 

Hótel Anna, Moldnúpi undir Eyjafjöllum
Laugardaginn 5. apríl frá kl. 11 - 16

Opið hús og léttar veitingar í boði
Kynning á starfsemi Hótel Önnu og sýningunni þar um Önnu frá Moldnúpi. Boðið er upp á fría kjötsúpu og bjór frá Ölvisholti með súpunni 

Íþróttamiðstöðin Hvolsvelli
Laugardaginn 5. apríl, kl. 10:00 – 17:00
Frítt í sund og líkamsrækt 

Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum
5. – 6. apríl, kl. 11:00 – 17:00

Opið bú á Þorvaldseyri þar sem hægt verður að fræðast um starfsemi Eyrarbúsins e.h.f. 

Njálurefillinn frumsýndur í Sögusetrinu á Hvolsvelli
5. – 6. apríl, kl. 10:00 – 17:00
Í Sögusetrinu á Hvolsvelli verður frumsýning á því sem nú þegar er búið að sauma í Njálurefilinn. Aðeins í þetta eina skipti þangað til búið verður að sauma alla 90 metrana. Ómetanlegt tækifæri fyrir alla áhugasama um söguna og handverkið að koma og sjá útkomuna. Sjá nánar, www.njalurefill.is       

Fyrirlestur um Njálu í Sögusetrinu
6. apríl, kl. 17:00 – 18:00
Sagan sett á svið. Njála og erlendir leikritahöfundar
Jón Karl Helgason, prófessor í íslenskum bókmenntum, fjallar um erlend leikskáld sem sótt hafa efni og innblástur í Njálu þar sem útkoman er víða bæði óvenjuleg og ögrandi.

Nánari upplýsingar um alla viðburði á Suðurlandi má finna hér og á www.sudurland.is