Útiljósmyndasýning ljósmyndaklúbbsins 860+ verður uppi í allt sumar á túninu bak við Landsbankann á Hvolsvelli. Verið hjartanlega velkomin að kíkja á sýninguna okkar.

Í ár má sjá 40 ljósmyndir sem munu vonandi gleðja augu gesta og gangandi í allt sumar. Það sem einkennir þessa sýningu okkar í ár er fjölbreytileiki myndanna en þær eru af ýmsum toga og hvetjum við ykkur eindregið til þess að kíkja við hjarta Hvolsvallar og njóta.


Ljósmyndarar í ár eru:

Jóna Sigþórsdóttir
Hafdís María Jónsdóttir
Ásta Þorbjörnsdóttir
Kristín Erna Leifsdóttir
Heiða Björg Sceving
Sigurður Jónsson
Þorsteinn Valsson
Þorsteinn Jónsson
Finnur Bjarki Tryggvason
Snorri Sævarsson
Björn Á. Guðlaugsson
Hrafn Óskarsson
Ómar Smári Jónsson
Jón Helgi Snorrason