Uppbyggingarsjóði Suðurlands bárust nú í fyrri úthlutun ársins 137 umsóknir. Fjöldi umsókna og fjölbreytileiki verkefna er ágætt merki um heilbrigði og grósku í samfélaginu. Mörg verkefni komu til álita að þessu sinni og var 87 verkefnum veittur styrkur. Heildar fjárhæð styrkveitinganna nam um 38 milljónum. Úthlutað var um 19 mkr. til 56 menningarverkefna og um 19 mkr. til 31 nýsköpunarverkefnis.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja menningar-og nýsköpunarverkefni í landshlutanum. Við mat á umsóknum vísast til úthlutunarreglna og viðmiða um mat á umsóknum sem finna má á heimasíðu SASS. Verkefnastjórn Sóknaráætlunar á Suðurlandi fer með hlutverk úthlutunarnefndar en fagráð á sviði menningarmála annars vegar og nýsköpunar hins vegar, skila tillögum til verkefnastjórnar. Umsjón og ábyrgð Uppbyggingarsjóðsins er hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.

Sjá meðfylgjandi yfirlit yfir styrkt verkefni hér á heimasíðu SASS og hér meðfylgjandi.

Nánari upplýsingar um úthlutunina veitir Þórður Freyr Sigurðsson sviðsstjóri hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, í síma 480-8200 eða með tölvupósti á netfanginu thordur@sudurland.is.