Uppbyggingarsjóði Suðurlands auglýsir styrki til umsóknar 


Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til menningar- og nýsköpunarverkefna úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og mat á umsóknum má sjá hér og sækja má um styrk hér

Á fundi verkefnastjórnar Sóknaráætlunar og Uppbyggingarsjóðs Suðurlands 23. september sl. var eftirfarandi bókað er varðar næstu úthlutun;

„Samþykkt áætlun um að veita 34,5 milljónum króna úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands í síðari úthlutun ársins. Áætluð skipting er 21 mkr. til nýsköpunarverkefna og 13,5 mkr. til menningarverkefna. Hærri áætlun til nýsköpunarverkefna skýrist af óúthlutuðu fé til málaflokksins frá síðasta ári. Af fjármunum til menningarverkefna eru 1,5 milljónir til komnar vegna samnings við Rarik um stuðning þeirra við menningarstarf á Suðurlandi. Auglýst verður eftir umsóknum frá og með fyrstu vikunni í október og opið verður fyrir umsóknir í um 5 vikur að þessu sinni. Með lengri umsóknartíma er vonast til að ráðgjöfum gefist meiri tími til að aðstoða umsækjendur við mótun verkefna og gerð umsókna.“

Þórður Freyr Sigurðsson ráðgjafi hjá SASS er með starfstöð á Selfossi og líka á Hvolsvelli við Ormsvöll 1. Hann veitir ráðgjöf m.a. í tengslum við styrkina. Hann er í síma 480-8200 og netfangið hans er thordur@sudurland.is