Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra voru veitt á Kjötsúpuhátíðinni nú um helgina. Það er Skipulags- og umhverfisnefnd sem að velur úr innsendum tillögum og voru viðurkenningar veittar í þremur flokkum.

Snyrtilegasti garðurinn í sveitarfélaginu er Litlagerði 2a en þar búa au Birgir Óskarsson og Pálína Guðbrandsdóttir 

Snyrtilegasta býlið í sveitarfélaginu er Ytri Skógar en þar eru ábúendur í félagsbúi þau Sigurður Sigurjónsson og Kristín Þorsteinsdóttir annars vegar og hins vegar Ingimundur Vilhjálmsson og Margrét H. Jónsdóttir. 

Snyrtilegasta fyrirtækið í sveitarfélaginu er Eld´stó Art Café en eigendur Eldstó eru þau G. Helga Ingadóttir og Þór Sveinsson.

Tómas Birgir Magnússon, oddviti, afhenti verðlaunin.