Umhverfisverðlaun Rangárþings eystra 2020

Umhverfis- og náttúruverndarnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tillögum til Umhverfisverðlauna Rangárþings eystra 2020

Verðlaun verða veitt í eftirtöldum flokkum:

Umhverfisverðlaun árið 2020 fyrir garð.
Umhverfisverðlaun árið 2020 fyrir býli.
Umhverfisverðlaun árið 2020 fyrir stofnun / fyrirtæki

 

Miklu máli skiptir að íbúar sveitarfélgasins taki nú höndum saman og tilnefni þá sem skarað hafa fram úr í sveitarfélaginu við að fegra umhverfi sitt.

Hægt er að skila inn tilnefningum á skrifstofu sveitarfélagsins, Austurvegi 4 og í tölvupósti á netfangið: arnylara@hvolsvollur.is fyrir 14. ágúst nk.

Umhverfis- og náttúruverndarnefnd