Ágætu nemendur, foreldrar og forráðamenn!

Við biðjum ykkur að staðfesta fyrir lok næstu viku, í síðasta lagi föstudaginn 22. apríl,  hvort að nemendur sem nú eru skráðir við skólann muni halda áfram tónlistarnámi skólaárið 2016 – 2017.

Staðfesta á skólavist rafrænt.

Til að staðfesta er farið inná https://schoolarchive.is/ . Þar er farið í “Innskráning forráðamanna”. Þeir sem ekki eru nú þegar með lykilorð smella á “Senda mér lykilorð” á innskráningarsíðunni.

Leiðbeiningar fyrir innskráningarferlið og staðfestingu áframhaldandi náms er að finna hér: Leiðbeiningar fyrir nemendur, foreldra og forráðamenn vegna innskráningar í dcapo.

Hafið samband við skrifstofu ef vandamál koma upp.