Þann 18. desember 2018 kl. 20.00 verða haldnir jólatónleikar  í Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð.
Þar flytja þau Sigríður Aðalsteinsdóttir, altsöngkona, Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari og Guðjón Halldór Óskarsson, orgelleikari ýmsar perlur sem kalla inn jólin. Með þeim taka þátt kirkjukórar Breiðabólstaðarprestakalls.
Á efnisskránni er m.a. Aría úr Jólaóratoríunni og  Slá þú hjartans hörpustrengi eftir J.S.Bach, Adagio eftir T. Albinoni, Ó helga nótt eftir A. Adam og í lokin sameinast allir og syngja Nóttin var sú ágæt ein.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomir.