Á sveitarstjórnarfundi í dag fóru fram umræður um gjaldtökumál á ferðaþjónustustöðum. Sveinn Kristján Rúnarsson, fulltrúi í nefnd um gjaldtöku á ferðamannastöðum, kom á fundinn, veitti upplýsingar og tók þátt í umræðunum ásamt Steingerði Hreinsdóttur, framkvæmdarstjóra Kötlu jarðvangs og Sigurði Sigursveinssyni framkvæmdarstjóra Háskólafélags Suðurlands. 

Sveitarstjórn Rangárþings eystra sameinast um eftirfarandi tillögu sem samþykkt var samhljóða:


Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir að leita leiða til að hefja megi gjaldtöku á  í sveitarfélaginu. Settur verði á laggirnar starfshópur sem hefji viðræður við aðra landeigendur í sveitarfélaginu og sveitarfélögin í Kötlu jarðvangi.
Hópinn skipi þrír fulltrúar; einn frá hverjum lista sem fulltrúa á í sveitarstjórn, sveitarstjóri starfar með hópnum. Skal starfshópurinn hafa heimildir til að kveðja á fund sinn sérfræðinga eftir því sem þurfa þykir.
Hópinn skipa: Guðlaug Ósk Svansdóttir, Kristín Þórðardóttir og Guðmundur Ólafsson.