Tilkynning frá hjúkrunarforstjóra á Kirkjuhvoli
Í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða teljum við á Kirkjuhvoli réttast í stöðunni að loka fyrir heimsóknir meðan línur skírast. 

Við vonumst til þess að við sjáum fljótt árangur á þessum aðgerðum og getum þá í kjölfarið opnað fyrir heimsóknir að nýju. 

Við hvetjum aðstandendur samt til að kíkja á gluggan hjá íbúum og vera í sambandi við okkur.  

Undantekningar eru gerðar fyrir heimsóknir ef íbúi veikist skyndilega. 

Bestu kveðjur til ykkar og munum að fara varlega

Ólöf Guðbjörg Eggertsdóttir

Hjúkrunarforstjóri