ÍBV vann glæsilegan sigur á Haukum í gærkvöldi og eru Íslandsmeistarar í handbolta karla. Leikurinn var frábær skemmtun og það var frábært að sjá sigurviljann og kraftinn í liðsmönnum ÍBV. Stuðningsmenn liðsins voru einnig stórkostlegir. Þess má geta að einn leikmaður ÍBV, Guðni Ingvarsson, er fæddur og uppalinn á Hvolsvelli en foreldrar Guðna eru Helga Fjóla Guðnadóttir og Ingvar Ingólfsson.