Formenn þorrablótsnefnda í Rangárþingi eystra hittust nú á dögunum til að ræða tillögu að tímasetningum fyrir þorrablótin sem haldin verða í sveitarfélaginu árið 2020.

Samhljóða niðurstaða var sú að öll þorrablót verði nú tengd við þorran og raðist því eftirfarandi: 

      1. helgi í Þorra - Austur Landeyingar í Gunnarshólma

     2. helgi í Þorra - Hvolhreppur í Íþróttahúsinu á Hvolsvelli

     3. helgi í Þorra - Fljótshlíðingar í Goðalandi og Austur Eyfellingar í Fossbúð

     4. helgi í Þorra - Vestur Landeyingar í Njálsbúð

     5. helgi í Þorra - Vestur Eyfellingar á Heimalandi